Previous Page  53 / 76 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 53 / 76 Next Page
Page Background

Hvernig stóðst þú þig?

7 af 7 mögulegum

Einstaklega góð frammistaða! Klappaðu þér á bakið. Þú

hefur nú tileinkað þér alla nauðsynlega þekkingu til að fara

yfir í næsta kafla bókarinnar og læra meira um sérhvert þrep

sölu- og markaðskerfisins og ýmis af þeim frábæru hjálpar-

og kynningargögnum sem eru í boði til að hjálpa þér að byggja

upp velgengni og sjálfbær viðskipti af heiðarleika og heilindum.

Gættu þess að kynna þér allar starfsreglurnar (sem er að

finna í meðlimapakkanum og á netinu á

MyHerbalife.com

) eða

hafðu samband við þjónustufulltrúa hjá deildinni sem sér um

starfshætti og reglufylgni í viðskiptunum í þínu heimalandi.

Takk fyrir stuðning þinn við að vernda vörumerki Herbalife.

3‑6 af 7 mögulegum

Mjög vel gert. Samt sem áður ættir þú líklega að ganga úr

skugga um að þú kunnir fyllilega skil á starfsreglunum áður

en þú byrjar að stunda viðskiptin. (Þú finnur starfsreglurnar í

meðlimapakkanum og á netinu á

MyHerbalife.com.

) Takk fyrir

stuðning þinn við að vernda vörumerki Herbalife.

1‑3 af 7 mögulegum

Æ, æ! Þú gætir þurft að læra aðeins meira áður en þú færir

þig yfir í næsta kafla bókarinnar. Gakktu úr skugga um að þú

kunnir fyllilega skil á starfsreglunum áður en þú byrjar að stunda

viðskiptin. (Þú finnur starfsreglurnar í meðlimapakkanum og á

netinu á

MyHerbalife.com

.) Takk fyrir stuðning þinn við að vernda

vörumerki Herbalife.

MIKILVÆGT! Reglurnar sem farið var yfir í þessum kafla eru bara útdráttur og koma

ekki í staðinn fyrir reglurnar í heild sinni. Kynntu þér því vandlega allar mikilvægu

reglurnar, leiðbeiningarnar og starfshættina sem kveðið er á um í starfsreglunum.

Eftirfarandi meginreglur og staðlar liggja til grundvallar viðskiptareglum Herbalife:

1. Að vernda viðskiptavini, meðlimi og fyrirtækið.

2. Viðskipta- og lagakröfur.

3. Heiðarlegir viðskiptahættir.

4. Auglýsingar og ímynd vörumerkisins.

5. Bein dreifing og verndun tengslanna milli meðlims/viðskiptavinar.

6. Fjölþrepa viðskipti og verndun sponsors.

7. Eigendavernd í sjálfstæðum viðskiptum.

Ef þú ert með einhverjar spurningar um eitthvað af

ofangreindu skaltu ekki hika við að hafa samband við

þjónustufulltrúa hjá deildinni sem sér um starfshætti

og reglufylgni í viðskiptunum í þínu heimalandi.

Takk fyrir að hjálpa okkur að standa

vörð um vörumerki Herbalife.

SVÖR:

1. Rétt; 2. Rétt; 3. Rétt; 4. Rétt; 5. Rangt; 6. Rangt; 7. Rangt.

53

5

SÖLU- OG MARKAÐSKERFIÐ