„
Með hverjum deginum
sem þú heldur áfram
að byggja viðskiptin
upp á réttan hátt…,
með hverju skiptinu
sem þú skapar frábæra
reynslu af Herbalife…
og með sérhverjum
einstaklingi sem verður
langtímaviðskiptavinur
eða meðlimur í
Herbalife undir þinni
handleiðslu – styrkir
þú Herbalife.
“
Michael O. Johnson
Formaður stjórnar og forstjóri Herbalife
Heiðarleiki og heilindi í viðskiptum
Við vitum að þig klæjar í fingurna að hefjast handa og koma öllu
sem þú hefur lært í framkvæmd. Áður en þú lætur til skarar skríða
er þó mikilvægt að þú kynnir þér nokkrar af starfsreglunum okkar.
Hjá Herbalife erum við stolt af að stunda viðskiptin af heiðarleika og
heilindum og grunnstoð þess er að sérhver meðlimur einsetji sér að
setja markið hátt í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur í eigin viðskiptum.
Þessar starfsreglur hafa verið settar ÞÉR til verndar. Í þeim felast þær
siðareglur og þeir staðlar sem allir meðlimir í Herbalife verða að fara
eftir í störfum sínum.
Gefðu þér tíma til að kynna þér eftirfarandi reglur gaumgæfilega og
þegar því er lokið skaltu svara skyndiprófinu okkar til að athuga hversu
vel þú hefur staðið þig í náminu!
Reglur um fullyrðingar, staðhæfingar og
reynslusögur sem varða vörurnar:
✓
•
Þær verða að vera löglegar og sannleikanum samkvæmar og
mega á engan hátt vera villandi.
•
Þær verða að hvíla á eðlilegum sannleiksgrunni og fá verður
skriflega staðfestingu á sannleiksgildi þeirra áður en þær eru
birtar eða þeim er miðlað á annan hátt.
•
Þær verða að samræmast fullyrðingum og staðhæfingum sem
er að finna í núgildandi markaðsgögnum sem Herbalife hefur
gefið út eða í núgildandi áletrunum á vörunum frá Herbalife.
•
Þær verða samkvæmt lögum ávallt að innifela viðeigandi fyrirvara.
Reglur um fullyrðingar varðandi
þyngdarstjórnun.
Ekki er heimilt að setja fram eftirfarandi fullyrðingar innan
EMEA-svæðisins:
X
•
Fullyrðingar þar sem gefið er í skyn að heilsan geti orðið fyrir
áhrifum af því að sleppa því að nota vörur frá Herbalife.
•
Fullyrðingar þar sem minnst er á hraða eða magn þyngdartaps.
•
Fullyrðingar þar sem vísað er í ráðleggingar lækna eða annars
heilbrigðisfagfólks.
Í öllum umsögnum um þyngdarstjórnun verður
að gæta að eftirfarandi:
✓
•
Fjalla verður um þyngdarstjórnun að hætti Herbalife sem hluta
af heilnæmum og virkum lífsstíl og ekki má beintengja neinn
árangur við ákveðna vöru.
Öllum staðhæfingum um þyngdarstjórnun, þ.m.t. reynslusögum,
verður að fylgja eftirfarandi fyrirvari:
„Allar umsagnir um þyngdarstjórnun vísa til þyngdarstjórnunar að
hætti Herbalife, sem felur m.a. í sér vel samsett mataræði, reglulega
hreyfingu, nægilega vökvaneyslu, notkun fæðubótarefna þegar þörf
þykir og hæfilega hvíld. Árangur hvers og eins er mismunandi.“
Öllum umsögnum um þyngdarstjórnun hjá einstaklingum sem hafa átt
við mikla umframþyngd (klíníska offitu) að stríða verður að fylgja yfirlýsing
um að tekist hafi að ná tökum á þyngdinni undir beinu eftirliti læknis.
50
SÖLU- OG MARKAÐSKERFIÐ
5