HOLLRÁÐ
Prófaðu að fylgja eftirfarandi
hollráðum svo betur gangi að
sinna árangursríku eftirliti:
•
Sæktu og notaðu eftirlitseyðublöðin á
MyHerbalife.com.
•
Prófaðu þau í nokkra mánuði – hafa
þau áhrif á framleiðni hjá þér?
•
Beittu þig aga og líttu í eigin barm
af hreinskilni.
•
Temdu þér stefnufestu – fylltu
eyðublöðin út daglega, vikulega eða
mánaðarlega eftir því sem krafist er.
•
Aðlagaðu þig eftir þörfum – breyttu því
sem virkar ekki, efldu það sem gengur vel.
•
Með því að takmarka þig við örfáar
en skilvirkar mælistikur verður
mun auðveldara að fylgjast með
framvindunni í viðskiptunum.
•
Fylgstu með og hafðu góða stjórn
á útgjöldunum.
Notaðu mælistikur til að meta velgengnina
Mikilvægur þáttur í að stunda gróskumikil viðskipti er að halda skrá yfir helstu
mælistikur. Í boði er úrval af eftirlitseyðublöðum á
MyHerbalife.comsem gera
þér kleift að fylgjast með frammistöðu þinni í viðskiptunum og sjóðstreyminu
hjá þér dag eftir dag. Á grundvelli þess getur þú svo ráðist í breytingar til að ná
mánaðarlegum markmiðum ef með þarf.
Síðast en ekki síst geta þær upplýsingar sem fást með því að fylgjast með
viðskiptunum og greina hvað það er sem virkar, eða virkar ekki, gagnast til
að hjálpa þér að klífa hraðar upp þrep sölu- og markaðskerfisins (sjá nánari
upplýsingar á blaðsíðu 46). Ef ekki er haft eftirlit með viðskiptunum gæti verið
erfiðara að vita hvað betur mætti fara.
Fáðu alla í dreifingarhópnum þínum til að fylgjast
einnig með sínum viðskiptum.
Það gagnast ekki aðeins fyrir meðlimina þína og frammistöðu þeirra í viðskiptunum
heldur gefur þetta þér jafnframt færi á að kanna hvernig gengur í undirlínunum,
veita viðurkenningar fyrir góðan árangur og gefa ábendingar um umbætur.
Hvernig er unnt að haga þessu eftirliti?
Þú getur fylgst með mælistikum í viðskiptunum á ýmsan hátt:
•
Á pappír – það gerði Mark Hughes (1956 ‑ 2000), stofnandi Herbalife
og fyrsti meðlimur fyrirtækisins. Þú getur sótt alls kyns eftirlitseyðublöð
á
MyHerbalife.com.
•
Þú gætir notað krítar- eða tússtöflu.
•
Þú getur geymt upplýsingar í farsímanum, tölvunni eða spjaldtölvunni.
•
Þú gætir líka prófað Google Docs. Þegar eftirlit er annars vegar skiptir
aðferðin ekki máli, svo fremi sem þú sinnir því!
Hverju er rétt að fylgjast með?
Hægt er að nota ýmsar mælistikur til eftirlits í viðskiptunum.
Eftirfarandi dæmi væru tilvalinn byrjunarreitur:
•
Persónuleg viðskipti þín.
•
Viðskipti Supervisorahópsins.
•
Gestafjöldi á viðburðum.
•
Daglegar viðskiptaaðgerðir:
•
Hversu mörgum bauðst þú?
•
Hversu margir mættu?
•
Hversu marga meðlimapakka seldir þú?
•
Hversu margir urðu viðskiptavinir?
Ráðfærðu þig við fólkið í upplínunni þinni, leiðbeinandann þinn eða sponsorinn
þinn og fylgdu fordæmi þeirra í eftirlitinu.
68
HJÁLPAR- OG KYNNINGARGÖGN
6