GREIÐSLUR OG ENDURGREIÐSLUR
30 daga skilaréttur gegn endurgreiðslu
Viðskiptavinir geta skilað pöntunum innan 30 daga og fengið fulla endurgreiðslu.
Þrjátíu daga tímabilið hefst þegar viðskiptavinur fær vörurnar í hendur.
Sem meðlimur endurgreiðir þú viðskiptavininum vörurnar og sendir svo
Herbalife eftirfarandi gögn:
1. Endurgreiðslubeiðni (sem er að finna á
MyHerbalife.comá slóðinni
„Skrifstofan mín – Skjöl og stefnuyfirlýsingar – Skjöl – Eyðublöð –
Endurgreiðslubeiðni“).
2. Kvittun.
3. Ónotaðan hluta vörunnar, eða upprunalegan merkimiða af vörunni
eða tómt vöruílát.
Vinsamlegast sendu allt ofangreint á eftirfarandi póstfang í Bretlandi:
Herbalife UK and Ireland Limited | The Atrium, 1 Harefield Road, Uxbridge,
Middlesex, UB8 1HB, The United Kingdom.
Herbalife endurgreiðir ekki póstburðargjöld.
Þegar Herbalife hefur móttekið allt ofangreint verður þér send ný vara í staðinn.
Kynntu þér ánægjuábyrgðina og stefnuna um endurgreiðslu til viðskiptavina
í starfsreglum Herbalife til að fá nánari upplýsingar.
Get ég fengið meðlimapakka Herbalife endurgreiddan eftir kaupin?
Já. Þú hefur rétt á fullri endurgreiðslu á kaupverðinu sem þú greiddir, ef
þú óskar eftir að hætta við aðild þína að Herbalife innan 90 daga frá því
að umsókn þín var samþykkt.
Á hverju byggist árlega þjónustugjaldið fyrir aðild?
Herbalife samþykkir að sjá um tölvuvinnslu fyrir meðlimi sína og fyrir hana
þurfa allir sem eru með aðildarsamning við Herbalife að greiða árlegt
þjónustugjald („þjónustugjald“). Tölvuþjónustan sem um ræðir takmarkast
við að henda reiður á afsláttarprósentu, upplýsingum um dreifingarlínur og
stöðu varðandi réttindaöflun.
Sérhver meðlimur ber fulla ábyrgð á að greiða þjónustugjaldið árlega á
dagsetningu upprunalegrar aðildarumsóknar.
Til að kynna sér núverandi upphæð þjónustugjaldsins ber að skoða
núgildandi verðlista.
Hvers vegna þarf ég að greiða árlegt þjónustugjald fyrir aðild? Mér
var eytt af skrá vegna þess að ég endurnýjaði ekki réttindin en nú
langar mig að greiða gjaldfallið þjónustugjald. Á hvaða þrepi byrja
ég og hvaða afsláttarprósentu get ég fengið?
Herbalife samþykkir að sjá um tölvuvinnslu fyrir meðlimi sína og fyrir hana
þurfa allir sem eru með aðildarsamning við Herbalife að greiða árlegt
þjónustugjald („þjónustugjald“). Tölvuþjónustan sem um ræðir takmarkast
við að henda reiður á afsláttarprósentu, upplýsingum um dreifingarlínur og
stöðu varðandi réttindaöflun. Ef þú varst meðlimur með 25% afslátt eða
Senior Consultant með 35% afslátt kemst þú aftur á það afsláttarþrep sem
þú varst á þegar þér var eytt af skrá um leið og Herbalife móttekur greiðslu
á gjaldföllnu þjónustugjaldi. Til að halda stöðu sinni sem Success Builder
eða Qualified Producer þarf að greiða þjónustugjaldið á tilsettum tíma.
Ég þarf að breyta upplýsingum um bankareikninginn minn.
Getið þið breytt þeim þegar í stað?
Nei, við getum ekki breytt bankaupplýsingunum þínum án þess að fá frá þér
undirrituð gögn. Fylltu því út eyðublaðið, undirritaðu það og sendu okkur
það í pósti, sem skannað viðhengi í tölvupósti eða gegnum bréfsíma.
Ef ég sendi upplýsingar um bankareikninginn minn til ykkar þegar í
stað (á dagsetningunni XXX) hvenær móttek ég þá greiðsluna mína?
Greiðslur fara fram á ákveðnum dagsetningum. Greiðsla á heildsölutekjum
og umboðslaunum fer t.d. fram á fimmtánda degi hvers mánaðar (en getur
þó frestast um nokkra daga ef fimmtándi dagur mánaðarins lendir á helgi).
Hvaða greiðsluaðferðir er boðið upp á?
Þú getur greitt fyrir pantanir á eftirfarandi hátt:
• Með beingreiðslu/millifærslu inn á einhvern af bankareikningunum okkar
(Alpha Bank og Piraeus Bank).
• Með kreditkorti.
• Með reiðufé (ef fjárhæðin er að hámarki 500 EUR).
Hafðu samband við þjónustudeildina fyrir meðlimi í síma 800 9896 ef þú
þarfnast frekari aðstoðar eða útskýringa.
VÖRUR
Hvernig get ég aflað mér ítarlegri upplýsinga um vörurnar og
innihaldsefnin í þeim?
Þú getur leitað þér frekari upplýsinga í vörubæklingnum
(vörunúmer, SKU 6240) og á
MyHerbalife.com.Hvers vegna notið þið súkralósa í vörurnar ykkar?
Við notum sætuefni á borð við súkralósa í sumar bragðtegundirnar af Formula 1
til að tryggja frábært bragð og halda samt hitaeiningunum í lágmarki.
Hvers vegna notið þið gervilitarefni, gervibragðefni, paraben,
karragenan og gúargúmmí?
Tiltekin náttúruleg bragðefni og litarefni eru ekki eins stöðug og
gervibragðefni og gervilitarefni. Því er oft nauðsynlegt að nota gervibragðefni
og gervilitarefni til að varðveita efnisgæði og stöðugleika varanna. Öll litar- og
bragðefni sem við notum í vörurnar okkar eru í fullu samræmi við gildandi lög
og talin örugg til neyslu á þann hátt sem við nýtum þau í vörurnar.
Mega börn nota vörurnar frá Herbalife
®
?
Vörurnar frá Herbalife eru hugsaðar fyrir fullorðna og ekki er mælt með
að börn undir 18 ára noti þær.
Hversu marga máltíðardrykki má ég fá mér á dag?
Til að draga úr umframþyngd mátt þú fá þér allt að tvo máltíðardrykki á dag,
sem morgun- og hádegisverð. Til viðbótar við það er ætlast til að þú borðir
vel samsettan kvöldverð, hreyfir þig reglulega og ástundir heilnæman og
virkan lífsstíl almennt.
Til að halda þyngdinni innan hæfilegra marka mátt þú fá þér máltíðardrykk
í staðinn fyrir eina máltíð á dag.
Má ég bæta ávöxtum eða öðrum innihaldsefnum út
í F1‑máltíðardrykki?
Almennar upplýsingar varðandi vörurnar er að finna í nýjustu útgáfu af
vörubæklingnum fyrir þitt heimaland. Til að afla þér ítarlegra upplýsinga um
innihaldsefni í vörunum skaltu skoða áletrunina á ytri eða innri umbúðum
þeirra. Þar eru talin upp öll innihaldsefni og næringarupplýsingar.
Má ég nota vatn í staðinn fyrir mjólk til að blanda
máltíðardrykkinn minn?
Ætlast er til að Formula 1 máltíðardrykkir geti komið í stað heillar máltíðar,
en það gildir aðeins ef duftinu er blandað út í léttmjólk en ekki vatn.
Drykkjarpróteininu frá Herbalife má blanda út í vatn. Það er ætlað til nota
sem próteindrykkur en flokkast ekki sem máltíðardrykkur.
VIÐSKIPTAPUNKTAR
Hvað eru viðskiptapunktar?
Sérhverri vöru frá Herbalife er gefinn ákveðinn fjöldi viðskiptapunkta (VP) og
hann er sá sami í öllum löndum. Þegar þú pantar vörur safnast upp inneign
sem samsvarar þeim viðskiptapunktum sem fást fyrir vörurnar hverja
fyrir sig. Þessir uppsöfnuðu viðskiptapunktar bera vott um afköst þín í
viðskiptunum og liggja til grundvallar ýmiss konar réttindum og hlunnindum.
Viðskiptapunktar fyrir eigin innkaup (Personally Purchased Volume, PPV):
Hér er átt við viðskiptapunkta fyrir vöruinnkaup á eigin aðildarnúmeri beint
frá Herbalife.
Persónuleg viðskipti (Personal Volume, PV): Hjá fullgildum Supervisor
(FQS) byggjast persónuleg viðskipti bæði á viðskiptapunktum fyrir eigin
pantanir og pantanir meðlima í undirlínunum (sem panta beint hjá Herbalife
á 25% ‑ 42% afslætti).
Hópviðskipti (Group Volume, GV): Hjá Supervisor byggjast hópviðskipti á
viðskiptapunktum fyrir pantanir verðandi Supervisora með tímabundinn
50% afslátt.
Heildarviðskipti (Total Volume, TV): Heildarviðskipti eru samanlögð
heildartala persónulegra viðskipta og hópviðskipta hjá Supervisor.
Viðskiptapunktar frá undirlínunum (Downline Volume, DLV): Hjá þeim
sem eru ekki Supervisorar byggjast viðskiptapunktar frá undirlínunum á
innkaupum meðlima í undirlínunum á 25% ‑ 42% afslætti beint frá Herbalife.
Hver er munurinn á tekjustofni og viðskiptapunktum?
Hverri vöru er gefinn ákveðinn tekjustofn til að reikna út tekjur. Hverri vöru er
jafnframt gefinn ákveðinn fjölda viðskiptapunkta til að reikna út réttindaöflun
og ákvarða þrep meðlims í sölu- og markaðskerfinu.
Ég var rétt í þessu að leggja inn 600 VP pöntun fyrir þennan
viðskiptamánuð. Nú vil ég leggja inn aðra pöntun að andvirði
400 VP til að ná samtals 1.000 VP. Kemur síðari pöntunin mér upp í
42% afslátt? Skil ég þetta rétt?
Nei, til að fá 42% afslátt þarft þú að leggja inn eina pöntun sem nemur að
lágmarki 1.000 VP eða safna að lágmarki 2.000 VP í einum mánuði. Þegar
þú hefur safnað 2.000 VP getur þú pantað á 42% afslætti það sem eftir lifir
mánaðarins.
71
7
ALGENGAR SPURNINGAR