Previous Page  41 / 76 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 41 / 76 Next Page
Page Background

Hlutverkið sem felst í

því að vera sponsor

Nýr meðlimur í hópnum þínum mun

fylgja því fordæmi sem er gefið af þér og

leiðtogum í upplínunni þinni. Gefðu eins gott

fordæmi og þú getur og fylgstu með hvernig

dugnaður þinn og iðjusemi tvöfalda sig!

Alveg eins og gildir um viðskiptavini er mikilvægt að skapa nýjum

meðlimum auðvelt aðgengi að þér, einkum fyrsta mánuðinn. Líklegt

er að fjölmargar spurningar vakni hjá þeim meðan þeir stíga fyrstu

skrefin í sjálfstæðum viðskiptum. Vertu þeim því innan handar til að

veita ráðleggingar og aðstoð á komandi mánuðum.

1. Hjálpaðu nýjum meðlimi þínum að ná sínu næsta

Level 10 markmiði

Þegar nýr meðlimur nær Level 10 markmiði sínu er kominn tími

til að hjálpa honum að setja sér næsta markmið. Það gæti t.d.

verið að skrá sig í 5 km keppnishlaup eða að lækka hjá sér

fituprósentuna. Óháð því hvaða markmið verður næst fyrir valinu

skaltu leggja þitt lóð á vogarskálarnar til að hjálpa meðlimnum

þínum að stefna ótrauður á það.

2. Hjálpaðu nýjum meðlimum að setja sér markmið

í viðskiptunum

Fyrsta markmiðið hjá dæmigerðum meðlim gæti verið að ná

fimm nýjum viðskiptavinum. Afar uppörvandi er þegar markmið

nást. Þegar fyrsta markmiðið er í höfn vaknar því gjarnan áhugi

á að setja sér aðeins metnaðarfyllra markmið.

Hjálpaðu nýjum meðlimum að átta sig á stuðningsnetinu

sem þeim stendur til boða í nágrenninu

Hvort sem nýr meðlimur hefur innskráð sig til að njóta góðs

af afsláttarkjörunum fyrir meðlimi eða til að hefja sín eigin

viðskipti skaltu muna að spjalla við hann um það fræðslu-,

þjálfunar- og stuðningsnet sem hann hefur aðgang að.

Ef nýr meðlimur er áhugasamur um að hefja viðskipti fyrir alvöru

skaltu benda honum á að mæta á árangursþjálfunarnámskeið

(STS) eða námskeið í viðskiptauppbyggingu (BBS) á sínu

svæði. Slík námskeið eru mikilvæg til að afla sér þekkingar og

stuðningsnets og blanda geði við aðra meðlimi í heimabænum

eða á svæðinu. Sú tilfinning að tilheyra og vera órjúfanlegur

hluti af heilsteyptu samfélagi er samofin því að vera meðlimur.

Mæting á mánaðarlega fundi af þessu tagi mun reynast nýjum

(og núverandi) meðlimum þínum ómetanleg.

41

4

INNSKRÁNING NÝRRA MEÐLIMA