Nýr
viðskiptavinur
Tryggur
viðskiptavinur
Meðlimur
Lífsferill viðskiptavinar
Með lífsferli viðskiptavinar er átt við dæmigerða vegferð einstaklings sem skiptir við Herbalife.
Líklegt er að þú hafir þína eigin reynslu af því að vera viðskiptavinur. Gefðu þér dálitla stund til að hugleiða hvernig þér var komið í kynni
við Herbalife og hvernig sú vegferð þróaðist á eðlilegan hátt, allt þar til þú komst í núverandi spor.
Hér á eftir er venjulegri vegferð lýst:
Dæmigert er að
mögulegum viðskiptavini
sé boðið að taka þátt í einhverri starfsemi hjá núverandi meðlim í Herbalife eða heimsækja
starfsstöð hans. Líklegt er að þessum nýja gesti sé boðið upp á lífsstílsmat og mælingu á líkamssamsetningu. Í kjölfarið fengi gesturinn
síðan að kynnast vörunum og með hjálp meðlims í Herbalife (lífsstílsleiðbeinanda) fengi hann að fræðast um hugmyndafræði Herbalife í
næringarmálum og tileinka sér hana.
Um leið og hann er orðinn
viðskiptavinur
líður ekki á löngu þar til árangurinn fer að líta dagsins ljós, svo fremi sem hann notar vörurnar
frá Herbalife, fylgir lífsstílsleiðbeiningunum, nýtur gefandi tengsla við meðlim í Herbalife (lífsstílsleiðbeinanda), eykur þekkingu sína og
verður hluti af samfélagi.
Viðskiptavinur verður síðan fljótlega
tryggur viðskiptavinur
eftir að hann hefur náð frábærum árangri og verið baðaður í hrósi frá vinum
sínum og fjölskyldu! Á þessu stigi er viðskiptavinurinn orðinn ákafur um að deila velgengni sinni með öðrum og líklegur til að vísa vinum sínum
og vandamönnum á lífsstílsleiðbeinandann sinn. Hann gæti meira að segja verið farinn að velta fyrir sér að verða meðlimur í Herbalife sjálfur.
Þeir sem deila reynslu sinni af Herbalife með öðrum eru í raun og veru byrjaðir að byggja sér upp vísi að viðskiptavinahópi. Þegar hér
er komið sögu gætu tryggir viðskiptavinir ákveðið að skrá sig sem
meðlimir
í Herbalife og farið að vinna sér inn hlutatekjur. Það er svo
þegar meðlimur kemst upp á Supervisoraþrepið í sölu- og markaðskerfi Herbalife sem líklegt er að hann hafi byggt upp heilsteyptan hóp
af tryggum viðskiptavinum og meðlimum.
Sjálfstæð viðskipti að hætti Herbalife snúast um að fylgja þessari nálgun gagnvart sínum eigin viðskiptavinum. Leiðin til að laða að sér
viðskiptavini og skapa hjá þeim tryggð er að veita þeim fyrsta flokks þjónustu. Uppbygging blómstrandi viðskiptavinahóps hefur svo í för
með sér aukna tekjumöguleika.
12
2
FINNDU FLEIRA FÓLK OG HJÁLPAÐU ÞVÍ AÐ NÁ SÍNU MARKMIÐI