HUGARFAR
SÉRSNIÐINN STUÐNINGUR MEÐLIMS
Einstakt virði meðlima í Herbalife
Einn fyrsti virðisaukinn sem meðlimir geta boðið viðskiptavinum er að gæta þess að endurspegla gæði varanna og komast í sitt allra
besta form – eða Level 10 eins og Herbalife kallar það. Þú skalt því nota vörurnar daglega. Þegar þú nærð árangri af vörunum, og fólk sér
hvernig líkami þinn hefur breyst, getur þú tjáð þig út frá eigin reynslu – deilt með viðmælendum þínum þeirri þekkingu sem þú hefur viðað
að þér á þinni vegferð. Þegar þú talar út frá raunverulegri reynslu og viðskiptavinurinn getur séð árangurinn með eigin augum hefur þú
markað þér mjög sterka stöðu.
Að skapa persónuleg tengsl við viðskiptavininn og selja honum milliliðalaust er virðisauki sem þú, sem meðlimur í Herbalife, hefur í boði.
Einmitt þetta getur skapað þér forskot í samanburði við aðra valkosti. Viðskiptavinur sem gengur inn í stórmarkað og velur sér einfaldlega
vörur úr hillunum sjálfur nær ekki endilega besta mögulega árangri. Ópersónuleg kaup úr búðarhillum geta valdið því að neytendur fari
varhluta af raunverulegu innsæi og þekkingu á því hvernig vörurnar virka. Slík innkaupaaðferð felur ekki heldur í sér þann viðvarandi
stuðning, hvatningu og leiðsögn sem kostur gefst á í beinni dreifingu.
Með því að leggja áherslu á virðisauka fyrir viðskiptavininn, stuðning við hann og fyrsta flokks þjónustu getur þú, sem meðlimur í
Herbalife, stuðlað að ánægju, tryggð og áhuga viðskiptavina í garð Herbalife.
Nokkrir lykilþættir eru fólgnir í því að hjálpa viðskiptavinum að komast í sitt besta form – þ.e. sitt Level 10. Eigðu gott samstarf við
viðskiptavinina til að aðstoða þá við að temja sér heilnæman og virkan lífsstíl með
hollri fæðu
,
réttri hreyfingu
og
réttum vörum
til
að uppfylla þarfir sínar. Sem
persónulegur lífsstílsleiðbeinandi
fyrir viðskiptavinina er hlutverk þitt einnig að hvetja þá til dáða, aðlaga
vöruvalið að þörfum þeirra hverju sinni og halda þeim á réttri braut til að komast í betra form en nokkru sinni fyrr á lífsleiðinni. Gleymdu
svo ekki að lykilþáttur í þessu öllu er að kynna þá inn í viðeigandi hóp til að taka þátt í
samfélagsstarfi
. Vissulega þarf viðskiptavinurinn
einnig að einsetja sér að leggja hart að sér og varðveita rétt hugarfar. Sé öllum þessum leiðbeiningum fylgt er mun líklegra að
viðskiptavinir uppskeri þær jákvæðu breytingar sem þeir sækjast eftir og nái markmiði sínu.
Heilnæm
fæða
Rétt
hreyfing
Réttar
vörur
Lífsstíls
leiðbeinandi
Samfélag
MARKMIÐI
NÁÐ OG
ÁRANGUR
VARÐVEITTUR
1
09
VIRÐISAUKINN SEM FELST Í MEÐLIMUM