Tækifærið sem býðst
meðlimum í Herbalife
Þú hefur notað vörurnar og heillast af þeim.
Árangurinn er úrvalsgóður – þér líður afar vel og þú lítur frábærlega út.
Þú hefur gerbreytt lífsstílnum með meiri hreyfingu og tilheyrir
einstökum hópi af fólki með svipað hugarfar.
Ef þú hugleiðir vegferð þína með Herbalife hingað til getur þú sett saman sögu sem hjálpar þér að
laða að þér fleiri viðskiptavini. Allt snýst þetta um að deila reynslu þinni af Herbalife með öðrum.
Eftir að þú hefur upplifað breytinguna sem fylgir heilnæmum og virkum lífsstíl að hætti Herbalife er engin furða að þú áttir þig á
möguleikanum á því að hjálpa öðrum að áorka því sama. Hversu margir hafa verið áhugasamir um að vita hvernig þú hefur komist í þitt
allra besta form? Hversu margir hafa spurt þig um Herbalife? Þetta fólk er í raun óvirkjaðir viðskiptavinir hjá þér því það er nú þegar opið
og áhugasamt um þig og það sem þú hefur fram að færa.
Staldraðu við í smástund og hugleiddu
hvernig þú komst í núverandi spor:
Hvernig var lífsstíl þínum og lífsvenjum háttað áður en þú kynntist
Herbalife? Hver kom þér í kynni við vöruúrvalið? Hvaða árangri náðir
þú af vörunum? Hverjir hafa orðið á vegi þínum í þessari vegferð?
Hvaða stuðning hefur meðlimur í Herbalife veitt þér hingað til?
Með því einu að svara þessum spurningum, og deila svo
árangurssögu þinni og reynslu þinni af Herbalife með öðrum,
skapar þú áhuga. Þetta er svo sáraeinfalt! Ekkert hefur jafnmikinn
sannfæringarmátt og saga af eigin reynslu. Einmitt þessi aðferð er
auðveldasta leiðin til að hefja viðskipti með vörur frá Herbalife.
Velgengni hjá þeim sem grípa viðskiptatækifæri Herbalife veltur á því
að hjálpa viðskiptavinum að ná árangri. Ferlið byrjar á þér og því sem
breytist í þínu fari. Vinir þínir og vandamenn verða sjálfkrafa forvitnir
um breytingarnar sem þú hefur upplifað og vilja fá að vita meira.
Herbalife er alþjóðlegt fyrirtæki sem kappkostar að hjálpa fólki að
breyta lífi sínu og temja sér heilnæman og virkan lífsstíl. Við bjóðum
ekki upp á neinn tískukúr. Þvert á móti snýst Herbalife um val á
nýjum lífsstíl.
Með því að einsetja þér að þiggja hjálp Herbalife ert þú að einsetja
þér að ráðast í breytingar – bæði á þínu eigin lífi og á lífi annarra með
því að kunngera kosti þess að ástunda heilnæman og virkan lífsstíl.
Þú þarft ekki að búa yfir neinni reynslu af sölumennsku. Við sjáum
þér fyrir þjálfun og hjálpargögnum og þar að auki stuðningi frá
sponsornum þínum og öðrum meðlimum í Herbalife. Sögur alls þessa
fólks munu hvetja þig til dáða og þér verða kenndar réttu aðferðirnar.
1
06
TÆKIFÆRIÐ ER ÞITT