Previous Page  3 / 76 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 3 / 76 Next Page
Page Background

31%

Til hamingju

Kæri meðlimur í Herbalife,

Til hamingju með að hafa gengið til liðs við samfélagshóp

sem gefur sig af heilum hug í að breyta lífi fólks. Þúsundir

manna í öllum heimshornum hafa, rétt eins og þú, náð

persónulegum árangri með hjálp vöruúrvals Herbalife

®

. Í

kjölfarið hafa þeir svo ákveðið að byggja upp vel heppnuð

viðskipti með því að halda áfram að ástunda heilnæman

og virkan lífsstíl og deila sögu sinni. Þú getur það líka.

Þessi bók er leiðarvísir þinn til að átta þig á

viðskiptatækifæri Herbalife. Það tækifæri er opið öllum,

alveg óháð bakgrunni eða fyrri starfsreynslu. Hvort sem

þú ert að hugsa um þessi viðskipti sem hlutastarf eða

fullt starf getur þú sniðið þau alfarið að eigin lífsstíl. Ef

þú sýnir óbilandi áhuga og dugnað, og þiggur þann

stuðning sem er í boði frá öðrum meðlimum, getur þú

gert viðskiptin gjöful fyrir þig.

Einmitt núna er frábær tími til að tilheyra Herbalife. Hér á

eftir eru taldar upp fáeinar af ástæðunum fyrir því.

Meðlimirnir okkar

·· Þeir eru leiðbeinendur viðskiptavina sinna á vegferð þeirra í átt að heilnæmu og virku lífi og styðja þá við

hvert fótmál með fræðslu, hvatningu og fyrsta flokks þjónustu.

·· Þeir skipuleggja og taka sjálfir þátt í alls kyns starfsemi, á borð við gönguferðir úti í náttúrunni og hreyfingu

af ýmsu tagi, til að stuðla að hreysti og jákvæðum félagslegum samskiptum.

·· Þeir eru heiðarlegir og heilsteyptir í öllum sínum aðgerðum og eru vörumerki Herbalife til

sóma hvert sem þeir fara. Herbalife býður upp á hjálpargögn og þjálfun til að stuðla að góðu

siðferði og heilindum hjá meðlimum sínum.

Vörurnar okkar

·· Næringarvörurnar okkar eiga sér bakland í vísindum og við framleiðslu

þeirra er stuðst við metnaðarfyllstu staðla yfirvalda um allan heim.

·· Herbalife er í 1. sæti í heiminum í flokknum fyrir máltíðardrykki.*

·· Efnablöndur í vörunum þróast með tímanum til að uppfylla eftirspurn

á markaði og fylgja framförum í næringarfræði.

Samfélagið okkar

·· Við eigum í næringarsamstarfi á alþjóðavísu við hinn heimsþekkta

knattspyrnumann, Cristiano Ronaldo, og þar að auki

190 framúrskarandi íþróttamenn, íþróttalið og íþróttaviðburði víðs

vegar í heiminum.

·· Við styðjum Fjölskyldustofnun Herbalife, Herbalife Family Foundation (HFF), og Casa Herbalife verkefnin

á hennar vegum til að hjálpa til við að útvega börnum góða næringu.

Við höfum fulla trú á framtíð Herbalife, en ef þú kemst einhvern tíma að þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki

rétta tækifærið fyrir þig heimilar gullstaðalábyrgð Herbalife þér að skila vörum gegn fullri endurgreiðslu, svo

fremi sem þær hafa verið keyptar frá Herbalife á síðustu 12 mánuðum og eru í óopnuðum umbúðum og

endurseljanlegu ástandi.

Þótt fyrirtækið vaxi stöðugt hefur hugarfarið hjá Herbalife ekkert breyst síðan 1980. Þar ræður liðsandinn

ríkjum og sömu tækifæri standa öllum opin. Síðast en ekki síst erum við rétt komin í startholurnar!

Michael O. Johnson

Michael O. Johnson

Formaður stjórnar og forstjóri Herbalife

* Euromonitor International Limited. Samkvæmt skilgreiningum í flokknum af

máltíðarvörum: 31,2% markaðshlutdeild á alþjóðamarkaði, að teknu tilliti til

allra smásöluleiða. Pökkuð matvara 15. útgáfa; virði smásölu á smásöluverði.

Næstum þriðjungur þeirra

sem kaupa máltíðardrykki

um allan heim velja

Formula 1 frá Herbalife.*

1

03

VELKOMIN ÖLLSÖMUL