1
2
4
3
➡➡
Hugmyndafræði Herbalife um ákjósanlega
næringu fyrir allan heiminn er kjörin kynning
til að fræða mögulega viðskiptavini og
nota sem stuðningsefni við lífsstílsmat.
➡➡
Fangaðu athygli mögulegs viðskiptavinar
með því að spyrja: „Hefur þú einhvern tíma
velt fyrir þér hvernig þú gætir tryggt þér betri
næringu og hvaða ávinningur fylgir því?“
➡➡
Þú getur boðið mögulegum viðskiptavini að
mæta hjá þér í lífsstílsmat einhvern tíma síðar,
sérstaklega ef hann er of önnum kafinn til að
spjalla í rólegheitum í fyrsta sinn sem þið hittist.
➡➡
Samhliða mörgum af viðskiptaaðferðunum sem
Herbalife hefur í boði er tilvalin leið til eftirfylgni að
bjóða mögulegum viðskiptavinum í lífsstílskynningu
og lífsstílsmat. Mundu að þú þarft ekki að nota
hinar ýmsu aðferðir sem einangrað fyrirbæri!
STAÐREYND
Þú þarft hvorki að vera
næringarfræðingur né
íþróttakennari til þess að
framkvæma lífsstílsmat. Allir sem
kunna skil á hjálpargögnunum
okkar geta framkvæmt
slíkt mat!
Lífsstílsmat
Lífsstílskynning
er kjörin bæði fyrir mögulega (og nýja)
viðskiptavini áður en þú leiðir þá gegnum lífsstílsmat. Slík kynning
hjálpar til við að efla tengsl þín við viðmælendur þína með því að
veita þeim næringarupplýsingar, sem þeir höfðu ef til vill ekki á
takteinum áður. Jafnframt gefur hún þér færi á að sýna hvernig
þú getur hjálpað þeim að ná markmiðum sínum með því að flétta
saman góða næringu og heilnæman og virkan lífsstíl. Þú getur farið
inn á
MyHerbalife.comog sótt ítarlega kynningu sem Herbalife hefur
gefið út undir titlinum: Hugmyndafræði Herbalife um ákjósanlega
næringu fyrir allan heiminn. Að öðrum kosti getur sponsorinn þinn
hjálpað þér að finna einmitt réttu kynninguna fyrir þínar þarfir.
Hvað er lífsstílsmat?
Lífsstílsmat
gerir þér kleift að leggja ítarlegt mat á næringarástand
og líkamssamsetningu mögulegs viðskiptavinar. Einnig gefur það
þér dýrmæta innsýn í næringarval hans og lífsvenjur. Út frá þessum
upplýsingum getur þú fundið ýmislegt sem betur má fara og boðið
upp á sérsniðna lausn frá Herbalife. Þú getur hjálpað viðskiptavininum
að setja sér markmið og boðið upp á réttan stuðning.
Einnig er góð hugmynd, eins og áður sagði, að fara yfir
kynninguna um hugmyndafræði Herbalife í næringarmálum með
viðskiptavininum.
Lífsstílsmat getur hjálpað til við eftirfarandi:
•
Að skapa sér viðskiptavini með sannfærandi og áhugavekjandi
spjalli – virkar sem „öngull“.
•
Að stofna til stigvaxandi og ítarlegra tjáskipta sem hjálpa þér
að átta þig á raunverulegum þörfum mögulegs viðskipavinar.
Eftir það verður auðveldara að byggja upp tengsl og bjóða upp
á þann vörupakka sem smellpassar fyrir kaupandann.
•
Að gefa mögulegum viðskiptavini gagnleg ráð um lífsstílinn og
kynna hvernig vöruúrval Herbalife getur leyst málin.
•
Að framkvæma mælingu á líkamssamsetningu.
•
Að fá vísanir á fleira fólk frá þeim viðskiptavinum sem gangast
undir lífsstílsmatið.
Stuðningur
við viðskipta
vini og tryggð
Samræður,
mat og
flokkun
Boð
Kynning og
virðisauki
Einföld
starfsemi
24
VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR
3
LÍFSSTÍLS-
LEIÐBEINANDI
Biddu um
ÓKEYPIS lífsstílsmat