Previous Page  28 / 76 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 28 / 76 Next Page
Page Background

1

2

4

3

HERBALIFE

ACTIVE

Hreyfingarklúbbar

Hvað er hreyfingarklúbbur?

Hreyfingarklúbbar (sem eru kallaðir ýmsum nöfnum, t.d. hreysti-

eða lífsstílsklúbbar eða hreysti- eða lífsstílsáskoranir) byggjast á

hugmyndafræði sem sameinar þrennt: góða næringu, hreyfingu og

skemmtilegar samverustundir.

Slíkir klúbbar hjálpa meðlimum að varðveita viðskiptavini sína lengur

því þátttakendur hafa gaman af að hreyfa sig í góðum félagsskap

fólks í samfélaginu sem hefur svipað hugarfar og þeir sjálfir.

Mikilvægast er að starfsemin sé skemmtileg og fólk njóti

samvistanna við aðra. Þú skalt engar áhyggjur hafa þótt þú sért

ekki útskrifaður einkaþjálfari. Þú getur aukið hreysti fólks með

einfaldri hreyfingu (hlaupum, hjólreiðum, teygjum, göngu og

boltaleikjum svo dæmi séu nefnd). Gættu þess einungis að bjóða

upp á eitthvað sem er bæði hættulaust og auðvelt í framkvæmd og

láttu ekki hjá líða að leita ráðlegginga ef þú ert í vafa um eitthvað.

Hvernig getur þetta hjálpað þér að finna nýja

viðskiptavini og veita virðisaukandi þjónustu?

Eftir hreyfinguna getur þú boðið þátttakendum að fá frekari

upplýsingar um Herbalife. Þá gefst frábært tækifæri til

að fræða þá um mikilvægi góðrar næringar og hæfilegrar

hreyfingar. Sömuleiðis er þetta kjörin stund til að leyfa

nýjum þátttakendum að hlusta á reynslusögur núverandi

viðskiptavina þinna og meðlima. Enn fleiri mögulegir

viðskiptavinir fyllast kappi og verða áhugasamir um að hefja

viðskipti við þig þegar þeir hlusta á aðra segja frá góðum

árangri sínum og hrifningu sinni af Herbalife og vörunum.

Þú getur einnig kynnt heilnæman morgunverð eða

ákjósanlegan lífsstíl og framkvæmt síðan stutt lífsstílsmat

eftir að hreyfingunni lýkur. Með því gefst þér kostur á að

fá betri yfirsýn yfir venjur og lífsstíl þátttakandans. Bjóddu

svo gestum þínum að mæta til þín síðar til að gangast

undir lífsstílsmat í heild sinni ásamt tilheyrandi mælingu

á líkamssamsetningu.

Mikilvægt hollráð er að gæta þess að reyna að fá til sín nýtt

fólk í hverri viku. Engu skiptir í því sambandi hvort þú skapar

þér þessi nýju tengsl með hjálp vísana, áhrifahringsins þíns

eða einfaldlega með því að fara út í hringiðuna og dreifa rétt

merktum boðskortum og dreifimiðum. Því fleira fólki sem þú

bætir við, þeim mun meiri drifkraft getur þú skapað.

HOLLRÁÐ

Mundu að fá

vísanir á fleira fólk

hjá gestum þínum!

➡➡

Hreyfingarklúbbar að hætti Herbalife

gefa úrvalsgott tækifæri til að miðla

kostum góðrar næringar og hreyfingar.

➡➡

Hreyfingarklúbbar eru einstaklega árangursrík

leið til að veita virðisaukandi þjónustu og

byggja upp gjöful tengsl við viðskiptavini. Þeir

eru afar gagnlegir til að rækta tryggð meðal

viðskiptavina því þar skapast vettvangur til að

sækja sér ómetanlegan stuðning og reglulegar

samverustundir. Að sama skapi tryggja þeir þér

gott tækifæri til að fylgjast gaumgæfilega með

framförum hjá viðskiptavinunum, að verðlauna þá

fyrir unnin afrek og síðast en ekki síst að byggja

upp gefandi samfélag af fólki með svipað hugarfar.

Alls kyns áskorunarnámskeið eru

einnig frábær leið til að laða að sér

nýja viðskiptavini.

Þú getur búið til þín eigin áskorunarnámskeið eða stuðst við hina

einstaklega vel heppnuðu Level 10 lífsstílsáskorun. Sú áskorun

gefur þátttakendum kost á að komast í sitt besta form, þ.e.

Level 10 eins og Herbalife kallar það. Þátttakendur geta sett sér

mismunandi markmið, t.d. að léttast, minnka fituforðann eða

auka vöðvamassann, og tímaramminn er 90 dagar.

Eftirfarandi þjónusta er meðal þess sem þú þarft að bjóða

þátttakendum þínum upp á:

Einkatími þar sem þú mælir líkamssamsetningu hjá

þátttakendum hverjum fyrir sig.

Val á sérsniðnum næringarpakka og matseðli fyrir

hvern og einn.

Regluleg ráðgjöf og stuðningur frá lífsstílsleiðbeinanda.

Fræðsla um næringarmál og hreyfingu.

Vikulegir fundir.

Þar að auki skapa slík námskeið samkeppnisanda

sem gefst vel til að hjálpa þátttakendum að varðveita

áhugahvötina, halda sig á réttri braut á hverjum degi og

leggja enn harðar að sér í hreyfingunni.

Með því að taka þátt í slíkri keppni gætu þátttakendur

þínir unnið glæsileg verðlaun.

Til að fá nánari upplýsingar skaltu fara inn á

HerbalifeActive.com

.

Stuðningur

við viðskipta­

vini og tryggð

Samræður,

mat og

flokkun

Boð

Kynning og

virðisauki

Aðeins

flóknari

starfsemi

28

VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR

3