We ness
centre
ll
1
2
4
3
➡➡
Lífsstílsmiðstöð er einstaklega árangursrík leið til
að veita virðisaukandi þjónustu og byggja upp gjöful
tengsl við viðskiptavini. Hún er afar gagnleg til að
rækta tryggð meðal viðskiptavina því þar skapast
vettvangur til að sækja sér ómetanlegan stuðning
og reglulegar samverustundir. Að sama skapi tryggir
hún þér gott tækifæri til að fylgjast gaumgæfilega
með framförum hjá viðskiptavinunum, að verðlauna
þá fyrir unnin afrek og síðast en ekki síst að byggja
upp gefandi samfélag af fólki með svipað hugarfar.
Lífsstílsmiðstöð
Hvað er lífsstílsmiðstöð?
Lífsstílsmiðstöðvar eru hugsaðar sem félagslegt umhverfi
þar sem þátttakendur geta mætt reglulega, bragðað á
vörum, spjallað um hvernig þeim gengur og veitt hver
öðrum stuðning og vináttu.
Mögulegir og núverandi viðskiptavinir geta aðeins mætt í
lífsstílsmiðstöð ef þeim er boðið þangað persónulega.
Hvernig getur þetta hjálpað þér
að finna nýja viðskiptavini og veita
virðisaukandi þjónustu?
Margir eru svo hrifnir af reynslunni af því að mæta reglulega
í lífsstílsmiðstöð að þeir verða tryggir langtímaviðskiptavinir
eða með tímanum meðlimir í Herbalife sjálfir.
Í lífsstílsmiðstöð er hægt að bjóða upp á vöruprufur
og tala um vörurnar, halda kynningar og framkvæma
lífsstílsmat eða fjalla um viðskiptatækifærið svo dæmi séu
tekin. Óháð því hvaða viðskiptaaðferðir verða fyrir valinu er
fagmannlegt og afslappað umhverfi af þessu tagi frábær
vettvangur til að byggja upp persónuleg tengsl.
Stuðningur
við viðskipta
vini og tryggð
Samræður,
mat og
flokkun
Boð
Kynning og
virðisauki
Fast húsnæði fyrir viðskiptin, sem er stundum kallað
starfsstöð eða miðstöð, er bækistöð þar sem þú getur
sinnt ýmiss konar starfsaðferðum og hópastarfi.
Slíkt húsnæði skapar vettvang fyrir óformleg mannamót þar sem gestir með svipuð næringarmarkmið geta bundist tengslum og veitt
hver öðrum ómetanlegan innbyrðis stuðning um leið og þeir mæta í alls kyns starfsemi hjá þér á borð við: smökkunarteiti, lífsstílsmat,
kynningu á heilnæmum morgunverði og lífsstílsklúbb.
Meðlimur getur starfrækt sína eigin starfsstöð eða deilt húsnæðinu með öðrum meðlimum í Herbalife úr nágrenninu.
Þegar þú ert að stíga fyrstu skrefin sem meðlimur skalt þú ekki flýta þér um of að opna þína eigin starfsstöð. Þess í stað skalt þú hagnýta þér
félagsmiðstöð eða safnaðarheimili í nágrenninu svo þú getir einbeitt þér að því að byggja upp samfélag af viðskiptavinum og styðja þá. Þegar
þú ákveður að opna þína eigin starfsstöð þarft þú að muna eftir alls kyns fjárhagslegum þáttum sem þú þarft að taka með í reikninginn. Má
þar nefna sjóðstreymi og fastakostnað á borð við leigu fyrir húsnæði, viðskiptagjöld, veitugjöld o.s.frv. Þar að auki þarft þú að huga að ýmsum
rekstrarþáttum á borð við að skipuleggja vinnudaginn, að starfa á skilvirkan hátt með hópnum þínum og að halda utan um þá starfsemi sem fer
fram í klúbbnum þínum. Ítarlegar upplýsingar um starfsstöðvar er að finna í leiðarvísinum um að nota, bera og tala á
MyHerbalife.com.
Hér í framhaldinu er gefið yfirlit yfir lífsstílsmiðstöðvar og næringarklúbba sem eru starfsaðferðir sem unnt er að sinna á starfsstöðvum.
Aðeins
flóknari
starfsemi
30
VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR
3